Fánar, viðburðir og sýningar

Merkið ykkar á fána og bása, beint frá framleiðanda.

Augljóst fær tilboð frá framleiðendum erlendis og sér um allt ferlið: próförk, framleiðslu, flutning og toll. Þú sérð alltaf hvar pöntunin er stödd.

  • Tilboð án skuldbindingar
  • Próförk áður en framleitt er
  • Staða pöntunar á netinu
Dæmi

Pöntun AB-1042

50 fjaðrafánar, stærð L
Í framleiðslu
  1. Beiðni móttekin

  2. Tilboð samþykkt

  3. Próförk samþykkt

  4. Í framleiðslu

    Áætluð afhending kemur fram hér

  5. Á leiðinni

  6. Afhent

Hvernig það virkar

Einfalt ferli, frá beiðni að afhendingu.

Þú þarft ekki að tala við framleiðendur, flutningsaðila eða tollinn. Augljóst sér um það.

  1. Þú sendir beiðni

    Velur vöru, magn og stærð og hleður upp merkinu. Tekur tvær mínútur.

  2. Þú færð tilboð

    Við fáum verð frá framleiðanda og sendum þér tilboð með áætluðum afhendingartíma.

  3. Þú samþykkir

    Þú samþykkir tilboðið á netinu með einum smelli. Engin skuldbinding fyrr en þá.

  4. Próförk

    Þú sérð nákvæmlega hvernig varan lítur út með merkinu áður en nokkuð er framleitt.

  5. Framleiðsla og flutningur

    Varan er framleidd og send til landsins. Við sjáum um flutning og tollafgreiðslu.

  6. Afhending

    Pöntunin kemur til þín. Þú hefur fylgst með hverju skrefi á leiðinni.

Gagnsæi

Þú veist alltaf hvar pöntunin er.

Hver pöntun fær sína eigin síðu. Þar sérðu tilboðið, próförkina, stöðuna og allt sem hefur gerst. Þú þarft aldrei að hringja og spyrja.

  • Tilboð og próförk samþykkt á netinu
  • Staðan uppfærð í hverju skrefi
  • Áætluð afhending alltaf sýnileg
  • Eitt verð: framleiðsla, flutningur og tollur

Ertu með pöntun?

Fletta upp pöntun

Slóðin á pöntunina þína kom fram þegar þú sendir beiðnina og er í öllum póstum frá okkur.

Mín pöntun

Spurningar

Algengar spurningar.

Hvað kostar þetta?

Verðið fer eftir vöru, stærð, magni og prentun. Sendu beiðni og þú færð tilboð án skuldbindingar. Því fleiri einingar, því lægra verð á hverja.

Hvað tekur langan tíma að fá vöruna?

Það fer eftir vöru og magni. Áætlaður afhendingartími kemur fram í tilboðinu og á síðu pöntunarinnar, og við uppfærum hann ef eitthvað breytist.

Er lágmarksmagn?

Það er misjafnt eftir vörum. Skrifaðu það magn sem þú þarft og við segjum þér í tilboðinu ef lágmarkið er hærra.

Hvaða skrá þarf ég að senda af merkinu?

Best er vektorskrá (SVG, PDF, AI eða EPS). PNG í góðri upplausn gengur líka. Ef þú ert ekki með neina hjálpum við þér.

Er flutningur og tollur innifalinn?

Já. Tilboðið er heildarverð fyrir vöruna komna til landsins, með flutningi og tollafgreiðslu. Virðisaukaskattur er tilgreindur sérstaklega.

Hvenær borga ég?

Ekkert er greitt fyrr en þú samþykkir tilboðið. Greiðsluskilmálar koma fram í tilboðinu.

Segðu okkur hvað þú þarft og þú færð tilboð.

Fá tilboð